08.06.2026
Aðalfundur LS var haldinn þann 7. júní 2026 í Leikborg, aðstöðu félagsins við Borgarflöt 19d. Fámennt var á fundinum en góðmennt. Sem fyrr var starfsemi félagsins fjölbreytt á starfsárinu og rekstur þess gekk afar vel. Viðhöfð voru venjuleg aðalfundarstörf og kjörinn fundarstjóri var Guðbrandur J. Guðbrandsson.
01.06.2026
Hér er að finna umsóknarblað á sviðslistanámskeið LS sem fram fer 15.-17. júní n.k.
28.05.2026
15.-17. júní heldur Leikfélag Sauðárkróks sviðslistanámskeið fyrir
börn fædd 2013-2017
ATH. Takmörkuð pláss í boði - fyrstur kemur, fyrstur fær
Skráning hefst 1. júní
14.04.2026
Nú er komið að stóru stundinni. Frumsýning á vorleikriti LS Á sama tíma að ári verðuir föstudaginn 17. apríl. Miðapantanir í síma 849 9434.
11.04.2026
Á Sauðárkróki er stunduð öflug og lifandi leikhúsmenning þrátt fyrir að aðstaðan til að rækta hana að fullu hefur ekki haldið í við metnaðinn. Það er löngu tímabært að horfast í augu við þá staðreynd að hér á Króknum vantar menningarhús sem getur raunverulega sinnt leiksýningum, tónleikum og ýmsu öðru viðburðahaldi, hvert svo sem það er. Nú styttist í að ráðist verði í byggingu nýs menningarhúss við Safnahúsið á Flæðunum og er það fagnaðarefni.